OneTask - VerkefnastjórnunarkerfiHvað er OneTask?
OneTask er verkefnastjórnunarkerfi sem byggir á Microsoft.stýrikerfum og vef-viðmóti og er viðbót við OneCRM. Með OneTask geta verkefnisstjórar sett verkefni á starfsmenn og fylgst með framvindu þess. Hægt er að setja tímamörk og getur stjórnandi auðveldlega séð ef verkefni eru farin að dragast á langinn. Hægt er að senda áminningu á ábyrgðarmann verkefnis ef ástæða þykir til.
Af hverju OneTask?Nauðsynlegt er að geta haft yfirsjón með þeim verkefnum sem eru í gangi hverju sinni. Hægt er að sjá í hvaða stöðu verkefnið er í og auðvelt er að grípa í taumana áður en verkefni fara að dragast á langinn.
- Með OneTask er hægt að sjá yfirlit yfir öll verkefni á einum stað.
- Með OneTask er hægt að sjá hvaða verkefni eru komin yfir á tíma.
- Með OneTask hefur starfsmaður hefur auðveldan aðgang að sínum verkefnum í gegnum .mín verkefni..
- OneTask tengist við oneCRM þannig að verkefni safnast í samskiptasögu fyrirtækja.
- Hægt að aðgangstýra öllum verkefnum í OneTask.
- Með OneTask er hægt að geyma öll skjöl sem við koma verkefni undir verkefinu sjálfu.
- Auðvelt er að aðlaga og breyta OneTask til að uppfylla þarfir hvers fyrirtækis.
Kröfur:
Biðlari: Windows 95/98/NT/ME/2000/XP/Vista. Internet Explorer 6.0 eða nýrri.
Miðlari: Windows 2000/2003/2008 Server eða nýrri, MS SQL 2005 eða nýrri, Exchange 2000 SP3, IIS 5.0 eða nýrri. MSXML3.0 SP2 eða nýrri.
| < Fyrri | Næsta > |
|---|





