JA cPanel

OneSystems

islenskur hugbúnaður
Íslenskur hugbúnaður OneSystems er íslenskt fyrirtæki, þar sem Íslendingar hanna kerfi fyrir íslenskar aðstæður og þróa þau hér á landi. » meira
OneLand
OneLand er öflug lausn sem auðveldar byggingarfulltrúaembættum hjá sveitarfélögum að halda utan um mál og öryggi á skjölum. » meira
OneHelpDesk
OneHelpDesk er kerfi fyrir þjónustuborð sem hjálpar að flýta fyrir upplýsingagjöf og skráningu fyrir íbúa og viðskiptavini. » meira

Mosfellsbær í framvarðasveit í rafrænni stjórnsýslu

Mosfellsbær

Frétt frá vef Mosfellsbæjar 18. ágúst 2008

Mosfellsbær í framvarðarsveit í rafrænni stjórnsýslu

-Íbúar komnir í beint samband við bæinn sinn-

Mosfellsbær hefur í dag tekið í notkun svokallaða íbúagátt, sem eru rafrænar dyr að stjórnsýslu Mosfellsbæjar, og skipar sér þar með í framvarðarsveit sveitarfélaga í beitingu upplýsingatækni í stjórnsýslu. Með þjónustunni hefur Mosfellsbær þar með stigið enn eitt skrefið í að gera stjórnsýsluna aðgengilegri og auðveldar um leið íbúum bæjarins að nálgast þjónustu á vegum sveitarfélagsins.

Opnun íbúagáttar á vef MosfellsbæjarMynd: Bæjarstjóri og bæjarritari opna upp á gátt

.Með tilkomu íbúagáttarinnar hefur Mosfellsbær stigið mikilvægt skref í átt að markmiðum sínum um skilvirka og ábyrga stjórnsýslu. Segja má að með íbúagáttinni séu bæjarbúar komnir í beint samband við bæinn sinn því nú geta þeir með rafrænum hætti sótt um þjónustu til sveitarfélagsins, sent inn formleg erindi, fylgst með framgangi sinna mála, skoðað greiðslustöðu, komið ábendingum á framfæri og ýmislegt fleira. segir Haraldur Sverrisson bæjarstjóri. Íbúagátt Mosfellsbæjar

Í nýlegri skýrslu sem unnin var í kjölfar mikillar stefnumótunarvinnu fyrir Mosfellsbæ kemur fram að ein af meginstefnuáherslum Mosfellsbæjar er að vera leiðandi í rafrænni stjórnsýslu, með stuttan afgreiðslutíma erinda og gott aðgengi að þjónustu. Með tilkomu íbúagáttarinnar hefur því markmiði nú verið hrint í framkvæmd.

Þess má geta að íbúagáttarkerfið er unnið af hugbúnaðarfyrirtækinu OneSystems.

Fréttayfirlit OneSystems - yfirlit allra frétta

 

Sendu Fyrirspurn

Þjónustudeild

Samband
sími: 588-1050
opið: 9-17 virka daga
Hafdu Samband

Söludeild

Söludeildsími. 660-8551
tölvupóstiur:

Umsagnir

"OneSystems gegnir lykilhlutverki í vörslu mikilvægra upplýsinga"
Guðmundur Guðmarsson skjalastjóri hjá Íbúðalánasjóði

"One kerfið geymir öll mál og skjöl s.l. 11 ár. Starfsmenn OneSystems hafa veitt framúrskarandi góða þjónustu enda búa þeir yfir mikilli reynslu og þekkingu í mála og skjalakerfum fyrir opinberar stofnanir."Íbúðalánasjóður

Guðmundur Guðmarsson, Skjalastjóri Íbúðalánasjóði

Auglýsingar

Vöruhringur One - Hagkvæmar lausnir

Vöruhringur One - Hagkvæm heildarlausn fyrir fyrirtæki, sveitarfélög og stofnanir.

skoða


OneSystems

OneAsset.png